Svala Ólafsdóttir
Svala lauk BFA námi við San Francisco Art Institute árið 1986, MA-námi frá University of Texas 2005 og útskrifaðist frá New Mexico State University með MFA gráðu árið 2008, en hún hefur kennt myndlist við New Mexico State University frá því hún lauk námi. Í verkum sínum fjallar Svala meðal annars um tengslin á milli mynninganna, sagnanna, og svo hins uppfundna, eða tilbúna. Verk hennar eru unnin í ljósmyndun og oftar enn ekki er myndum raðað saman, tveimur eða fleirum til þess að skapa orðræðu eða ef til vill torræðu á milli einstakra ramma. Svala hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði heima og erlendið, meðal annars í Bandaríkjunum, Englandi og Mexíkó. Svala er gestalistamaður Hveragerðisbæjar nú í Júlí.